KONE sérhæfir sig í framleiðslu á lyftum, rennistigum og sjálfvirkum hurðum sem eru tæknilega í fremstu röð og framleidd með umhverfissjónarmið og orkusparnað í huga. Við aðstoðum viðskiptavini okkar í hverju skrefi frá hönnun og framleiðslu til uppsetningar ásamt viðhaldi og endurbyggingu á eldri tækjum. KONE er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu og höfum við það að leiðarljósi að aðstoða viðskiptavini okkar við að auðvelda og flýta flæði fólks og vöru um byggingar þeirra.
Allar KONE lausnir eru hannaðar með þarfir viðskiptavina okkar í huga. Þetta gerir okkur fært að þjónusta viðskiptavini okkar á sem áreiðanlegasta hátt allan líftíma byggingarinnar. Við hugsum út fyrir hin hefðbundnu viðmið og gildi iðnaðarins. Við erum fjót og sveigjanleg og höfum gott verðskuldað orðspor sem leiðandi hátæknifyrirtæki, með nýjungar eins og KONE MonoSpace®, KONE MaxiSpace™, and KONE InnoTrack™. Þessi tæki er td. að finna í þekktum byggingum á borð við Trump Tower í Chicago, 30 St Mary Axe byggingunni í London, Schiphol flugvelli í Amsterdam og Beijing National Grand Theatre í Kína.
Hjá KONE starfa yfir 30.000 sérfræðingar í 49 löndum víðsvegar um heim. Til að fræðast enn frekar um KONE, verið velkomin á heimasíðu móðurfyrirtækisins.
KONE á Íslandi
Íselekt ehf var stofnað 1994, þá strax hófst samstarf við KONE í Finnlandi. Sambandið þróaðist og árið 2004 keypti KONE meirihluta í Íselekt og nafninu var breytt í KONE ehf.
Frá upphafi hefur verið stöðugur vöxtur hjá fyrirtækinu og í dag eru KONE lyftur og rennistigar á stöðum eins og Flugstöðinni, Smáralind, Turninum og Kringlunni. Allir stærstu byggingaverktakar landssins eru meðal viðskiptavina Kone ehf.
KONE ehf hefur á að skipa reyndu starfsfólki í ráðgjöf, sölu, uppsetningum og þjónustu á lyftum og rennistigum.
Framkvæmdastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri eru Ólafur S. Einarsson og Eiríkur Karlsson.